umræður um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB.
Frú forseti. Mér finnst einhvern veginn blasa við núna eftir þessa stuttu umræðu hér um fundarstjórn forseta að forseti hreinlega verði að stíga inn í það mál sem hér er verið að taka upp; bæði hvað gögnin varðar sem sitja í þessu leyniherbergi, því þrátt fyrir það sem hv. þm. Ásthildur Lóa Þórsdóttir segir, um að þingmenn eigi bara að sinna vinnunni sinni og kynna sér gögn, þá er það mjög takmarkandi fyrir fulltrúa í utanríkismálanefnd að kynna sér þessi gögn og vera bundnir trúnaði um þau. Það er bara eins og raunheimar eru. Við hinir þingmennirnir sem ekki sitjum í hv. utanríkismálanefnd höfum engin tækifæri til að glöggva okkur á því sem þarna er.
Síðan er hitt atriðið, sem hv. þm. Hildur Sverrisdóttir kom hér inn á ásamt fleirum, að það verður að ramma inn með skýrari hætti — og ég held að það geti varla gerst af viti nema með framhaldsnefndaráliti annaðhvort utanríkismálanefndar eða stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar — (Forseti hringir.) þessi eðlisbreyting sem hefur orðið á málinu með svörum ráðherra, formanns utanríkismálanefndar, þingflokksformanns Viðreisnar og fleiri varðandi það að þetta sé á endanum ekki tveggja þrepa ferli heldur mögulega þriggja.