157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

umræður um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB.

[14:27]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Þungamiðja þessa máls er að við erum að fara að gera breytingar og þurfum að gera breytingar á stjórnarskrá lýðveldisins. Við erum að fara að framselja hluta af fullveldi þjóðarinnar. Við erum að fara að veikja vald þessarar stofnunar varanlega og framselja það til yfirþjóðlegs valds. Það er þungamiðjan í þessu máli. Þegar hv. formaður utanríkismálanefndar segir að aðildarviðræður muni taka þrjú til fjögur ár en nokkru seinna kemur hæstv. utanríkisráðherra og segir að það sé hægt að klára þetta mál á 12–18 mánuðum, þá er ekkert skrýtið að það læðist að manni ákveðin ónotatilfinning, ekki bara að mér heldur mörgum öðrum. Og það eru ábyggilega margir aðrir sem velta fyrir sér hvað er í þessum gögnum, hvað það er í þessum samskiptum við Evrópusambandið sem fær hæstv. utanríkisráðherra til þess að segjast geta (Forseti hringir.) klárað þetta mál á einum af þriðjungi af tímanum sem hv. formaður utanríkismálanefndar ætlaði að gera? Hv. stjórnarliðar hljóta að skilja (Forseti hringir.) að það læðist ónotatilfinning og grunur að þjóðinni þegar hún fær ekki að sjá þessi gögn en á samt að taka upplýsta ákvörðun um það (Forseti hringir.) hvort við eigum að ganga í Evrópusambandið eða ekki, af því að um það snýst atkvæðagreiðslan 29. ágúst.