umræður um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB.
Frú forseti. Ég ætla að ítreka það sem fram kom hér áðan um þau gögn sem sannarlega hafa verið afhent þinginu í gegnum utanríkismálanefnd sem bundin eru eðlilegum trúnaði, trúnaði sem myndi gilda um sambærileg gögn í öllum upplýstum lýðræðisríkjum, á þjóðþingum landa sem við viljum bera okkur saman við og eiga eðli málsins samkvæmt ekki erindi til allrar þjóðarinnar vegna utanríkishagsmuna Íslands. Mörg af þessum málum eiga uppruna sinn hjá síðustu ríkisstjórn, ríkisstjórn sem Sjálfstæðisflokkurinn átti svo sannarlega aðild að. Það kann hugsanlega að vera óþægilegt fyrir fulltrúa minni hlutans í utanríkismálanefnd að kynna sér þessi gögn og þurfa síðan að staðfesta það við sinn þingflokk. Eða er það bara sjálfstæður tilgangur að gera þetta eins tortryggilegt og hægt er með því að neita að sinna sínu hlutverki; fara inn, kynna sér gögnin og staðfesta síðan þetta? Nei, við skulum lesa ýmislegt í það. (Forseti hringir.)
Hér hefur utanríkismálanefnd sinnt sínu starfi og við í meiri hlutanum.