157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

umræður um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB.

[14:32]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Í tilefni af ummælum sem hér hafa fallið um samkomulag þingflokksformanna í þessari umræðu þá er rétt að halda því til haga að það hefur ekkert samkomulag verið gert um þessa umræðu umfram þær viðræður sem menn hafa átt um almenn þinglok sem eru venjubundin á þessum tíma ársins þegar líður að þinglokum og aðeins örfáir þingfundadagar eftir til að afgreiða, að ég held, hátt í hundrað mál frá stjórnarflokkunum sem hafa legið órædd í nefndum og óafgreidd úr nefndum en menn allt að einu hafa viljað koma í gegn í þinglokum. Umræður um þessi mál hafa lotið að þessu. Hins vegar hefur kannski verið samhljómur í mönnum um þessa umræðu eins og hún hefur verið hér og þingfundadögum lítillega fjölgað frá starfsáætlun til að koma henni við. Þessi umræða hefur þó verið í mýflugumynd miðað við þá umræðu sem fór fram hér í fyrra sinni, fyrir áratug síðan. Allt að einu liggur það fyrir að þingmenn í minni hlutanum vilja fá að sjá gögn sem liggja fyrir í þessu máli. Það ætti að vera auðsótt að fá aðgang að þessum gögnum (Forseti hringir.) af því að þau liggja nú þegar fyrir tiltekna þingmenn en ekki alla. Þess vegna hvet ég virðulegan forseta til að hlutast til um að þessi gögn verði aðgengileg hið fyrsta svo hægt sé að ljúka þessari umræðu.