157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

umræður um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB.

[14:34]
Horfa

Pawel Bartoszek (V):

Virðulegur forseti. Þau tvö atriði sem hér eru nefnd helst hafa bæði komið til tals undir liðnum um fundarstjórn forseta áður. Ég ætla að nefna annað þeirra sem snýr að fyrirhugaðri síðari atkvæðagreiðslu. Utanríkismálanefnd bað um umsögn Feneyjanefndar um þessa tillögu, m.a. að beiðni formanns Sjálfstæðisflokksins, og mér finnst að fólk eigi að kynna sér það álit sem þar liggur fyrir. Það er nefnilega ekki þannig að maður myndi ekki vilja koma hér og taka fram, eins og ég geri, að auðvitað verður aðild Íslands endanlega ekki samþykkt nema að undangenginni annarri atkvæðagreiðslu. En Feneyjanefndin sjálf er skýr með það að hvorki megum við né eigum að fullyrða að slík atkvæðagreiðsla muni fara fram því að það er ekki bara undir okkur komið. Það er undir því komið hvort það náist samningar eða hreinlega hvort Evrópusambandið vilji fá okkur inn. Ég segi svo að það þarf ekkert neitt framhaldsnefndarálit vegna þess að það er mjög skýrt sem segir hér í álitinu:

„ Meiri hluti utanríkismálanefndar telur, með vísan til ábendinga Feneyjanefndarinnar, sem gerð verður grein fyrir að aftan, ríka ástæðu til að árétta að niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar skuldbindur ekki íslensk stjórnvöld til að ljúka við aðildarsamning og leggja hann svo til samþykktar í þjóðaratkvæðagreiðslu öðru sinni.“

Síðan segir fyrir neðan:

„Ef samþykkt er að hefja viðræður að nýju og ef þær viðræður leiða til samnings verður hann lagður fyrir þjóðina til endanlegrar samþykktar eða synjunar. Það verður þá fyrst í þeirri þjóðaratkvæðagreiðslu að kosið verður um hvort Ísland skuli eiga aðild að ESB.“