157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

umræður um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB.

[14:36]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Virðulegi forseti. Við erum að fara að klára umræðu um mikilvægasta og stærsta mál þjóðarinnar marga síðustu áratugi. Það er ekki óeðlilegt að hafa þá skoðun að það þurfi að upplýsa málið frá öllum hliðum og að það þurfi að lýsa út í hvert einasta horn málsins, þar á meðal gögn sem fjalla um samskipti íslenskra ráðamanna síðustu mánuði úti í Brussel við kommissarana þar. Auðvitað þarf að upplýsa þessi gögn, leyfa þjóðinni að sjá þau og meta svo til að geta farið í þessa atkvæðagreiðslu eftir þrjá mánuði héðan í frá. Þetta er bara svipað og með samningsmarkmið þessarar ríkisstjórnar. Samningsmarkmið þessarar ríkisstjórnar eru vægast sagt verulega þokukennd. Auðvitað á ríkisstjórnin að leggja á borð fyrir þjóðina hver markmið ríkisstjórnarinnar eru í komandi samningaviðræðum en það gerir hún ekki nema með mjög þokukenndum hætti.