157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

umræður um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB.

[14:37]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að svara hv. þm. Dagbjörtu Hákonardóttur. Við áttum okkur öll á því að það þarf að vera trúnaður á ákveðnum gögnum en við erum að tala um gögn sem eru samskipti milli hæstv. utanríkisráðherra og embættismanna í Brussel út af þessari þjóðaratkvæðagreiðslu … (DagH: Nei. Þetta er rangt …) (Gripið fram í.) — Forseti. Var ég með orðið?

(Forseti (BergÓ): Þingmaðurinn hefur orðið.)

Gögn sem þessi meiri hluti segist treysta þjóðinni fyrir nema leynigögnunum, en öllu öðru ætlar hann að treysta þjóðinni fyrir, þannig að þetta er bara í orði en ekki á borði. Svo kemur hv. þm. Pawel Bartoszek og fer að tala um Feneyjanefndina. Þessi sama Feneyjanefnd lagði það til að utanríkismálanefnd fengi upplýsingar frá Evrópusambandinu. (Gripið fram í.) En hvað gerði meiri hluti utanríkismálanefndar? Hann hafnaði því að fá þær upplýsingar. Aftur og aftur er þessi meiri hluti að hafna því að minni hlutinn fái upplýsingar og hafna því að þingið fái upplýsingar og hvað þá þjóðin. Það er það sem við búum við og það er ekki ásættanlegt. Eftir einn og hálfan dag í þingsal höfum við fengið að ræða þetta mál og þið talið um að við séum að tefja málið. Einn og hálfur dagur sem almennir þingmenn hafa fengið að ræða þetta. (Gripið fram í.)