157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

umræður um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB.

[14:39]
Horfa

Snorri Másson (M):

Virðulegur forseti. Ég vildi koma hingað upp til að ítreka af hvaða ástæðu menn eru að benda á hversu óljóst það er orðið hvað nákvæmlega felst í að samþykkja þessa þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður. Það hefur alltaf verið útgangspunkturinn að þetta feli í sér ákvörðun um að fara í aðildarviðræður, fá samning og leggja samning fyrir þjóðina. Af málflutningi stjórnarliða að dæma undanfarna daga hafa komið fram skilyrði sem ekki voru komin fram áður, eins og t.d. frá hæstv. loftslagsráðherra um að ekki yrði lagður fram vonlaus samningur við Evrópusambandið sem stjórnarflokkarnir standa ekki með. Þarna er verið að lýsa því að stjórnarflokkarnir þurfi að standa með samningi á sama tíma og við fáum yfirlýsingar frá þingmönnum Flokks fólksins og formanni Flokks fólksins um að þeim hugnist ekki aðild að Evrópusambandinu og þar með geta þau í eðli sínu mjög ólíklega staðið með þessum samningi. Hvernig á að lesa þetta öðruvísi en að við séum að fara einfaldlega í þjóðaratkvæðagreiðslu um að hefja aðildarviðræður sem heldur ólíklegt er á þessu stigi að álykta um að muni enda í samningi sem svo verði lagður fyrir þjóðina? (Forseti hringir.) Og þetta eru sömu stjórnarliðar og þrástagast á því að við séum svo hrædd við þjóðaratkvæðagreiðslu. Þau treysta sér ekki í þjóðaratkvæðagreiðslu með hvaða samning sem er.