157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

umræður um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB.

[14:40]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Herra forseti. Ég verð að viðurkenna að það er ótrúlega skrýtið að hlusta á þann málflutning sem er hér af hálfu hv. stjórnarliða í þessu risastóra máli þar sem því miður hefur verið gert lítið úr staðreyndum mála. Það er frekar verið að einbeita sér að því að gefa eins lítið af upplýsingum og hægt er frekar en eins mikið af upplýsingum og hægt er, eins og væri eðlilegt. Einhvern veginn er núna búið að snúa því þannig að það sé minni hluti sem hafi eitthvað að fela, að það sé minni hlutinn sem sé að halda eftir einhvers konar upplýsingum og einhverjum gögnum. Þetta leikrit, þessi bíómynd er svo furðulega uppstillt að hún ætti í rauninni að fá einhvers konar sköpunarverðlaun fyrir að hafa náð að snúa þessu öllu saman á haus. Ég hafna því alfarið að þessu sé snúið upp á okkur eins og var gert hér og nú.

Mig langar að segja að lokum að það að meiri hlutinn geri hlutverk Alþingis að engu er því miður ekkert nýtt í þessu húsi. En það að heyra ekki hversu óeðlilegt og hversu vont það er að forsætisráðherra, (Forseti hringir.) framkvæmdarvaldið, ætli sér að taka úrslitaákvörðun um það, þvert á allt það sem stendur í gögnum löggjafans um þetta mál sem verður borið undir þjóðina, (Forseti hringir.) þvert á það allt saman, er óeðlilegt, herra forseti. Það er vont að sjá af hvers konar léttúð á því er tekið hér í þessum sal.