157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

umræður um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB.

[14:42]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Herra forseti. Það er með hreinum ólíkindum að heyra málflutning stjórnarliða hér, að líkja samningi í aðildarviðræðum við ESB sem kjarasamningi sem menn ætli ekki að bera á borð ef þeim líst ekki á hann. Hér er búið að lofa tveimur atkvæðagreiðslum. Hvers vegna treystir meiri hlutinn ekki þjóðinni fyrir því að skoða þann samning sem kemur fram ef það verður já í ágúst? Hvers vegna treysta menn ekki þjóðinni? Ætla menn bara að pakka einhverjum samningi niður sem þeim hugnast ekki? Það er búið að lofa tveimur atkvæðagreiðslum. Við það skuli menn standa. Og hér kemur hv. þm. Dagbjört Hákonardóttir og talar um að kynna sér gögnin og lesa heima. Mér finnst að hv. þingmaður ætti bara að hætta að kasta steinum úr glerhúsi. Hann nefnir hér í pontu sjálfur, hv. þingmaður, í andsvörum við mig, með leyfi forseta, svo ég vísi beint í hv. þingmann: Ég verð að viðurkenna vanþekkingu mína á Evrópusambandinu. — Hún er greinilega að verða æpandi fyrst hv. þingmaður hafði ekki hugmynd um það að stjórnsýsla Íslands væri of lítil fyrir aðildarviðræður við Evrópusambandið. (Gripið fram í.)