umræður um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB.
Virðulegur forseti. Ég vil bara byrja á að þakka fyrir efnislega og mjög góða umræðu hér alla síðustu viku um málið. Mér finnst hún vera góð og gagnleg og ég vil þakka þeim þingmönnum sem hafa tekið þátt. Mér fannst hún góð. Varðandi eðli þessara gagna sem óskað er eftir, sem eru á „milliríkjaleveli“, þá stendur fulltrúum hv. utanríkismálanefndar til boða að lesa þau og fara yfir þau. Ég held að það væri mjög gott ef fulltrúar minni hlutans í utanríkismálanefnd myndu fara inn í leyniklefann, sem er nú bara venjulegt fundarherbergi, þeir myndu kynna sér þessi gögn og myndu fara með gögnin til baka í sinn þingflokk. Ég held að við myndum bara leysa mjög mikið með því að gera það. (Gripið fram í: Það má ekki. )Já, eða alla vega að staðfesta að þau séu ekki hættuleg. En ég vil enn og aftur þakka fyrir umræðuna í síðustu viku og ég vona að við getum haldið áfram að eiga jafn góða og gagnlega umræðu eins og við höfum átt síðustu daga.