umræður um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB.
Herra forseti. Þetta óvænta tilboð hérna rétt áðan sló mig aðeins út af laginu en fram að því hef ég undrast það hvað stjórnarmeirihlutanum, sem kynnir þetta mál á þeim forsendum að það snúist um að þjóðin fái að velja, er mikið í mun að þjóðin, og reyndar alþingismenn, fái sem allra minnstar upplýsingar. Það er furðulegt hvað stjórnarmeirihlutanum hefur tekist að temja, ef svo má segja, sitt fólk í meiri hlutanum. Hér kemur meira að segja hv. þm. Ásthildur Lóa Þórsdóttir sem hefur byggt sinn pólitíska feril á því að krefjast gagna, krefjast gagnsæis og segir að það sé nú alvanalegt að menn fái ekki að sjá öll gögn. Hvað er að gerast hérna, herra forseti? Það er ekki forsvaranlegt í öllu falli að klára þetta mál án þess að almenningur fái að vita hvað já þýðir. Menn fá ekki vita hvað nei þýðir en fólk þarf alla vega að vita hvaða afleiðingar það hefur ef menn segja já í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu.