157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

upplýsingar um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB.

[14:46]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (ber af sér sakir):

Virðulegi forseti. Hér var því haldið fram í ræðustóli rétt í þessu af hálfu hv. þm. Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur að ég væri vísvitandi að mæla fyrir því að gögnum um þessa þjóðaratkvæðagreiðslu væri leynt fyrir þjóðinni því þau væru í leyniherbergi. Eins og margítrekað hefur komið fram af hálfu okkar í meiri hluta utanríkismálanefndar varða þessi gögn ekki þjóðaratkvæðagreiðslu um Evrópusambandið sem kynni að eiga sér stað í ágúst. Þetta varðar milliríkjasamskipti, samskipti sem varða þjóðarhagsmuni ef þau verða gerð opinber. Það verður að koma því hér á framfæri. Ég legg til að fulltrúar minni hlutans í utanríkismálanefnd kynni sér þessi gögn því við vitum að ástæða þess að þau gera það ekki er til þess að gera þetta ferli tortryggilegt gegn betri vitund.