upplýsingar um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB.
Virðulegur forseti. Þessi umræða um gögnin í leyniherberginu verður sífellt furðulegri. Þau voru lögð fram við meðferð þessa máls sem hér verður til umræðu í dag, þ.e. þingsályktunartillögu ríkisstjórnarflokkanna um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þessi gögn voru lögð fram í leyniherbergi af því tilefni. Hér kemur svo hv. þm. Samfylkingarinnar, Dagbjört Hákonardóttir, og heldur einhverju öðru fram, að þetta séu ekki gögn sem varði aðildarviðræður, sem hafi ekki þýðingu í aðildarviðræðum ef í þær yrði farið á næstu mánuðum, heldur varði þetta samskipti við Evrópusambandið. Og ekki hafði minni hlutinn tök á að stjórna því. Af einhverjum ástæðum voru þessi gögn en ekki einhver önnur lögð fram í einhvers konar leyniherbergi undir trúnaði við meðferð þessarar þingsályktunartillögu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Það kann að vera að í þessum gögnum séu ekkert endilega einhver gögn eða einhverjar upplýsingar sem varða aðildarviðræður, en þau varða samskipti við Evrópusambandið, við þetta sama Evrópusamband (Forseti hringir.) og menn hér vilja fara í aðildarviðræður við. Það er það sem skiptir máli, að það liggi fyrir með hvaða hætti þau samskipti hafa verið á undanförnum misserum og a.m.k. árum líka.