upplýsingar um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB.
Herra forseti. Mér vannst ekki tími til þess þegar ég ræddi fundarstjórn forseta hér áðan að nefna það sem er nú ákveðið grundvallaratriði varðandi þau leynigögn sem við bíðum enn eftir að verði frelsuð. Megnið af þeim upplýsingum sem skipta mestu máli um hvað já í hugsanlegri þjóðaratkvæðagreiðslu þýði komu annaðhvort fram á lokasprettinum í vinnu hv. utanríkismálanefndar eða utan frá, þar með talið samningsafstaða Evrópusambandsins sjálfs til þeirra viðræðna sem nú er leitast við að endurvekja. En eitt af því sem komið hefur á daginn þó er að hæstv. utanríkisráðherra hefur átt fjölmarga fundi sem hæstv. ráðherra faldi, fjölmarga fundi með fulltrúum Evrópusambandsins, þeir nema tugum, þar sem oft var rætt um aðildarferli við Evrópusambandið. Hvað var rætt? Dettur einhverjum í hug að hæstv. utanríkisráðherra hafi á þeim fundum sagt: Svo það sé alveg á hreinu þá erum við ekkert að sækja um til að ganga inn, sko, við ætlum bara að sjá hvað þið bjóðið okkur. Dettur einhverjum í hug að hæstv. utanríkisráðherra hafi sagt það sama í Brussel og á Íslandi?