upplýsingar um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB.
Herra forseti. Þótt ætlunin sé alls ekki að æra óstöðugan þá er hér um svo mikið grundvallaratriði að ræða á lokametrum þessa máls, í þinglegri meðferð þess alla vega, þessi orð hæstv. forsætisráðherra um að kannski verði samningur ekki lagður fyrir þjóðina. Mig langar að útskýra aðeins betur fyrir hv. þingheimi af hverju þetta skiptir máli og af hverju það er óboðlegt að forsætisráðherra skuli taka svona til máls og hv. stjórnarmeirihluti láti sér það í léttu rúmi liggja. Fyrir utan það að við höfum hér í margar vikur grátbeðið meiri hlutann að vera skýr um nestið sem samningamennirnir munu fá til Brussel. Núna kemur í ljós að við höfum ekki hugmynd um hvar sársaukalínurnar í huga hæstv. forsætisráðherra munu vera. Það fer gegn öllum gögnum þessa máls, öllum gögnum sem eru lagaleg undirstaða þess. Við erum hér búin að rífast í margar vikur um hvort aðildarumsóknin sé enn gild eða ekki. Ég hélt að hún væri ekki lengur í gildi. En svo kom Ursula von der Leyen síðasta sumar (Forseti hringir.) og sagði að hún væri í gildi og við erum búin að þrefa um þetta fram og til baka. Hver verður staðan eftir umræðurnar næstu ár ef hæstv. forsætisráðherra ákveður, þvert á öll gögn málsins, að leggja ekki þessa spurningu fyrir þjóðina eins og er búið að lofa ítrekað? Verður þá bara í mörg ár þetta samtal í gangi? Verður því lokið eða ekki? Enginn hér inni getur svarað því og það er óboðlegt á lokametrum þessa máls. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)