157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

upplýsingar um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB.

[14:53]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Herra forseti. Þetta er dálítið mögnuð yfirferð í þessum lið, fundarstjórn forseta. Ekki aðeins sátum við undir því hér áðan í óundirbúnum fyrirspurnum að hæstv. ráðherrar Flokks fólksins svöruðu ekki sannleikanum samkvæmt ef rýnt er í gögn um hvernig flokkurinn svaraði varðandi afstöðu sína til Evrópusambandsins eða t.d. um þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort sótt verði að nýju um aðild að sambandinu, eins og ég vék að í fundarstjórn hér fyrr í dag — skýringarnar sem við fengum voru ekki í neinu samræmi við það hvernig þessi flokkur svaraði fyrir kosningar, svo því sé haldið til haga.

Nú stöndum við uppi með það verkefni í höndunum, herra forseti, að það sem var algjörlega skýrt í upphafi við meðferð þessa máls og er skrifað inn í málið, að hér verði niðurstaðan lögð fyrir þjóðina, stendur ekki heldur lengur. Nú er það bara væntanlega hæstv. forsætisráðherra, reyndar bakkaður upp af utanríkisráðherra og hæstv. orkumálaráðherra — að hér bara verði eitthvert sjálfdæmi um það hvort þjóðin fái að sjá niðurstöður þeirrar vegferðar sem hér er boðuð, algjört sjálfdæmi um það. Ég veit ekki, herra forseti, með hvaða hætti (Forseti hringir.) forseti getur stigið inn í þetta en það hlýtur að verða að stíga inn í þetta (Forseti hringir.) því að það er ekki bara að gögnum sé haldið frá þjóðinni, frá þingmönnum sem eiga enga möguleika á að kynna sér þetta, þrátt fyrir orð hv. þm. Dagbjartar Hákonardóttur, heldur er engin leið fyrir þjóðina (Forseti hringir.) að taka upplýsta ákvörðun þegar hringlandahátturinn hér í þessum sal er með slíkum hætti.