157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

upplýsingar um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB.

[14:55]
Horfa

Ragna Sigurðardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Mig langaði að koma hingað upp og spyrja — vegna þess að í þessum sal hefur núna undanfarið verið rætt mikið um svokölluð leynigögn — hvort hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hafi nýtt sér setu sína í utanríkismálanefnd og kynnt sér þessi meintu leynigögn sem hv. þingmaður hefur aðgang að. Hvers vegna ekki, ef ekki? Er það hugsanlega vegna þess að auðveldara er að dylgja um gögnin ef maður hefur ekki kynnt sér þau og í staðinn tala gegn betri vitund? Ég vil spyrja og fá svör við því hvort hv. þingmaður hafi kynnt sér gögnin og ef hann hefur ekki kynnt sér þau, hvers vegna ekki.