upplýsingar um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB.
Virðulegur forseti. Hér í þessari fundarstjórn hafa vaknað upp og verið dregnar saman ákveðnar spurningar sem væri kannski ágætt að hv. stjórnarliðar myndu koma hingað upp og svara, ekki bara tala um gögnin og gagnaleyndina, heldur væri kannski allt í lagi að hv. þingmenn myndu svara fyrir orð hæstv. forsætisráðherra og hæstv. orkumálaráðherra og svara því hvort þetta sé tveggja eða þriggja þrepa samningsferli. Verður það undir hæstv. forsætisráðherra komið hvort aðildarsamningur verði lagður niður? Er það sameiginlegur skilningur annarra stjórnarliða að þetta sé þannig? Það væri líka ágætt að fá svör við því frá hv. stjórnarliðum hvernig standi á því að hæstv. utanríkisráðherra segist geta klárað þennan samning á allt að 12 mánuðum á meðan hv. formaður utanríkismálanefndar segist ætla að það taki þrjú, fjögur ár. Hvað veit hæstv. utanríkisráðherra meira en hv. formaður utanríkismálanefndar? Það væri ágætt ef hv. stjórnarliðar kæmu hér upp og svöruðu þessum spurningum sem brenna á vörum stjórnarandstöðunnar.