upplýsingar um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB.
Herra forseti. Þar sem manni er réttilega aðeins brugðið yfir því í hvers konar vendingar þetta mál hefur farið þá láðist mér að tengja fundarstjórnina við aðkomu virðulegs forseta. En mig langaði að nefna að því miður virðist það hafa verið þannig að þegar við í stjórnarandstöðunni höfum réttilega komið fram með áhyggjur og gagnrýni á vinnslu málsins er okkur brigslað um tafaleiki eða eitthvað slíkt. Og þar sem maður er nú sérlega lausnamiðaður og lipur í öllum samskiptum þá langaði mig að koma með ákveðna lausn og beina því til forseta, út af orðum hæstv. forsætisráðherra um að hún muni vera einhvers konar dómstóll í þessu ferli, án þess að það styðjist við nein gögn málsins, að ég held að það blasi við að nauðsynlegt sé að forseti stígi inn í þessa stöðu og hlutist til um að t.d. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og/eða utanríkismálanefnd — en kannski helst stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd vegna þess að hérna er framkvæmdarvaldið að stíga með mjög freklegum hætti inn í gögn og aðkomu löggjafans — skýri bara nákvæmlega hvar sársaukalínur hæstv. forsætisráðherra liggja. Hvað er vondur eða góður samningur? Þetta er bara eitthvað sem er lágmarksatriði að þjóðin viti. Og einnig, herra forseti, tel ég nauðsynlegt að vita, þar sem ég hef í rauninni ekki heyrt hæstv. utanríkisráðherra koma fram með sína sýn á þessi orð: Eru þær sammála um þetta mál? Ég held að það sé nauðsynlegt fyrir þingheim og þá þjóðina að vita það nákvæmlega. Hvar stendur þetta mál í hugum hæstv. ráðherranna? Hvar liggja línurnar? Því að ekki vitum við í stjórnarandstöðunni það og þá veit þjóðin það ekki heldur.