157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

upplýsingar um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB.

[15:01]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Herra forseti. Það er kannski til að æra óstöðugan, en ég er að hugsa um að gera það samt af því að hér situr í salnum hv. þm. Ásthildur Lóa Þórsdóttir sem sagði í pontu áðan: Vinnið þið vinnuna ykkar. Ég vann vinnuna mína, hv. þingmaður, og flokkurinn sem hv. þingmaður starfar fyrir og er í umboði hjá svaraði þessari spurningu: Mun flokkurinn á næsta kjörtímabili styðja það að tekin verði skref í átt að inngöngu í Evrópusambandið, t.d. með þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort sótt verði á ný um aðild að sambandinu? Svarið var nei, hv. þingmaður. Við erum nefnilega, sumir hv. þingmenn, að vinna vinnuna okkar og þekkjum söguna ágætlega.