þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Forseti. Ég kem aðallega hérna upp til að svara spurningu hv. þm. Ólafs Adolfssonar sem hann varpaði hér fram, af hverju við værum eftirsóknarverð. Við getum auðvitað öll haft okkar skoðanir á því en ég ræddi nýverið við nokkra Evrópuþingmenn og það var alveg á hreinu af hverju þeir vilja að við göngum í Evrópusambandið. Mér var sagt að þeir væru mjög spenntir vegna þess að loksins kæmi land sem borgaði meira inn en það tæki út. Að sama skapi, ef þú ræðir við óbreytta þingmenn, hvort sem er í Bandaríkjunum eða í Evrópu, þá er stemningin yfirleitt þannig að við erum spurð: Af hverju í ósköpunum eruð þið að sækja um að fara í Evrópusambandið? Þannig að þetta er orðin svolítið sérstök umræða en þetta snýst auðvitað bara um hver borgar inn og svo um náttúruauðlindir okkar að mínu mati.
En mig langaði að nota tækifærið og spyrja hv. þingmann. Nú erum við búin að fá að ræða þetta, óbreyttir þingmenn, í tvo hálfa daga. Ég sagði hér einn og hálfan áðan en þetta er nær því að vera tveir hálfir dagar. Núna eru, held ég, yfir tíu manns á mælendaskrá að fara í fyrstu ræðu. Pressan er slík að það lítur út fyrir það að þingmenn meiri hlutans, meira að segja þeirra flokka sem eru stofnaðir utan um Evrópusambandið eins og Viðreisnar, skrái sig ekki á mælendaskrá þannig að við getum ekki átt samtöl við þá vegna þess að tíminn er svo knappur.
Mig langar því að spyrja: Skiptir það einhverju máli að atkvæðagreiðslan sé þann 29. ágúst eða viku seinna að mati hv. þingmanns, ef við fáum í staðinn, ef það verður kannski viku seinna, gögnin úr leyniherberginu og við fáum smá meiri tíma í umræðu til að varpa ljósi á málið? Er þá ekki ein vika eitthvað sem skiptir engu máli í stóra samhenginu að mati þingmannsins?