157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:10]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Það sorglega var reyndar að utanríkismálanefnd náði ekki að taka á móti öllum og hefur verið að fá gögn eftir að málið var farið út úr nefnd. Ég hef reynt að ná fram og fá svar við einu en enginn virðist einhvern veginn geta svarað mér. Ég ætla að athuga hvort hv. þm. Ólafur Adolfsson geti gert það. Hér er mikið talað um að það verði bara kosið um hvort við viljum kíkja í pakkann í ágúst. Nú liggur það fyrir að það hefur ekkert land fengið til að mynda varanlega undanþágu frá sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni, ekkert land. Varanlegar undanþágur eru ekki í boði. Það var maður, ég held hann heiti Guy Verhofstadt, sem kom að heimsækja Viðreisn í fyrra. Hann fór vel yfir það að Evrópusambandið væri þannig að þetta væri ekki matseðill þar sem þú getur pikkað út hitt og þetta. Samt eru þessir sömu þingmenn úr Viðreisn og Samfylkingunni að halda því fram að þetta sé einhvers konar kíkja í pakkann-dæmi. En það eru engar varanlegar undanþágur. Hins vegar snýr samningurinn að því hvernig við aðlögum okkur að Evrópusambandinu. Núna erum við komin á seinni hluta þessarar umræðu og enn þá er verið að halda þessu fram. Mig langar að spyrja hv. þingmann: Lítur hann svo á að Ísland eitt ríkja nái þeim árangri? Telur hann líklegt að Ísland nái þeim árangri að þegar ekkert land hefur fengið varanlegar undanþágur undanfarið geti Ísland geti látið Evrópusambandið aðlaga sig að Íslandi og allt í einu þegar Ísland sækir um verði varanlegar undanþágur út um allt? Þetta er auðvitað óboðlegur málflutningur sem er verið að bera hérna á borð. En ég spyr: Getur hv. þingmaður útskýrt hvort það sé eitthvað raunhæft í þessu kíkja í pakkann-dæmi?