þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sitt seinna andsvar. Ég vil bara segja strax að ég hef ekki trú á því að við fáum varanlegar undanþágur. Það væri þá alla vega mjög ánægjulegt ef til þess kæmi. En mér finnst hv. þm. Pawel Bartoszek, formaður utanríkismálanefndar, hafa verið mjög raunsær í því sem hann nefndi hér í pontu um að það væri kannski ekki mikið að sækja varðandi það að fá undanþágu frá sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni. Ég held að það sé alveg hárrétt hjá hv. þingmanni. Þó að maður telji að niðurstaðan verði sú að það náist ekki neitt fast frá Evrópusambandinu í þessum efnum er það nú samt þannig að héðan fer væntanlega samninganefnd sem hefur það markmið að ná þessu fram. Svo er bara spurning hvort hún nær árangri eða ekki, sú nefnd, hvort hún nær þessu. En ég held að það hefði í rauninni verið skynsamlegra af okkar hálfu bara einfaldlega að spyrjast sérstaklega fyrir um þetta og velta því þá upp af því að eins og ég nefndi í ræðu minni þá hef ég stundum á tilfinningunni að Evrópusambandið sé í rauninni að bjóða okkur að koma og vilji í rauninni leggja eitthvað extra af mörkum til þess að við verðum aðilar. Við þurfum þá að fá að heyra nákvæmlega hvað það er. Ég get ekki heyrt það á því sem hér hefur komið fram og það hafa engin loforð verið nefnd. Þvert á móti, eins og ég nefndi, þá finnst mér t.d. formaður utanríkismálanefndar hafa verið mjög raunsær í sinni afstöðu í þeim efnum.