þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið þar sem var komið inn á nokkra mikilvæga þætti. Ég skal reyna að gera þessu skil sem best ég get. Í fyrsta lagi þá er auðvitað stolið úr mér hver fyrsti punkturinn var. Jú, varðandi aðildarstöðuna. Ég tek undir áhyggjur eða vangaveltur þingmannsins, ég treysti mér ekki sjálf til þess og vil kannski síður standa hér og vera eitthvað að giska á hvað býr í huga fólks. En það get ég svo sannarlega sagt og hef orðað það frekar skýrt í dag að mér finnst mjög bagalegt að upp sé komin sú staða að hæstv. forsætisráðherra sé komin með einhvers konar þriðju útgáfu af þessu ferli sem stangast á við allan lagalegan grunn málsins, ég tala nú ekki um þegar við vitum hversu miklu máli það getur skipt hvort aðildarumsókn er í gangi eða ekki.
Ég taldi að þessi aðildarumsókn hefði ekki lengur verið í gildi því að á heimasíðu Evrópusambandsins vorum við ekki aðildarríki. En svo allt í einu eftir heimsókn Ursulu von der Leyen vorum við allt í einu orðin aðildarríki. Gott og vel. En hvað þýðir þetta í raun? Ef við siglum í strand, sem mér þykir ekki ólíklegt, því að þrátt fyrir að ég heyri hæstv. utanríkisráðherra segja að það sé enginn eins og Ísland, og ég get alveg vel skilið það. Auðvitað eru margir spenntir fyrir því að fá Ísland þarna inn því að við erum eitt fárra ríkja sem myndu borga með sér en ekki fá borgað. Varðandi allar þær varanlegu undanþágur er leikur að orðum hvað það varðar, hvort það sé tímabundið eða alvöruundanþágur eða varanlegar eða hvað það er, auðvitað skiptir það máli, þá þurfa öll aðildarríkin í vissum aðstæðum að samþykkja það líka. Þannig að þegar við erum að tala um landbúnað eða sjávarútveg eða þessi risastóru mál, erum við þá að halda að öll hin ríkin (Forseti hringir.) séu sátt við þessa aðra meðferð Íslands? Það þætti mér skrýtið.