157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:22]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta utanrmn. (Diljá Mist Einarsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Í framsöguræðu minni fór ég ítarlega yfir nefndarálit okkar hv. þm. Hildar Sverrisdóttur vegna tillögu hæstv. utanríkisráðherra um atkvæðagreiðslu um viðræður um aðild Íslands að ESB. Álitið liggur frammi og ég tel okkur hafa gert álitinu skil og ágætisumræður hafa skapast um það hér í þingsal. Ég ætla því að leyfa mér að verja tímanum í þessari ræðu í að fara betur yfir efnisatriði málsins.

Fyrst langar mig að nefna að einhverjir hafa viljað ræða þessa atkvæðagreiðslu í algeru tómarúmi, án samhengis við það hvað Evrópusambandið er og hvað það þýðir þegar ríki gerist aðili að sambandinu. Hæstv. utanríkisráðherra lagði fram tillögu um áframhald viðræðna við ESB um aðild Íslands, áframhald frá árinu 2009. Vegna alvarlegra athugasemda, m.a. Feneyjanefndarinnar og landskjörstjórnar, hefur meiri hluti utanríkismálanefndar nú lagt fram breytingartillögu varðandi orðalag spurningar til íslensku þjóðarinnar en byggir samt áfram á ályktun Alþingis og umsókn Íslands um aðild 2009. Það kemur skýrt fram í áliti meiri hlutans. Bréfið sem fór frá ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur 2009 var skýrt. Þar sótti ríkisstjórnin fyrir hönd lýðveldisins Íslands um aðild að Evrópusambandinu — um aðild að Evrópusambandinu. Ég hef birt þetta bréf á Facebook-síðu minni og hvet fólk til að lesa.

Við skulum þess vegna ræða hvað það þýðir að vera hluti af ESB. Það er rétt að við höldum hér ekki á endanlegum aðildarsamningi svokölluðum en það þýðir ekki að við vitum ekki hvað það þýðir að vera í Evrópusambandinu, að við vitum ekki hvað við þurfum að gefa eftir til að ganga inn í Evrópusambandið. Í grunninn snýst þetta um völd, um ákvörðunarrétt Íslands. Öll ríki sem ganga inn í ESB undirgangast víðtækt framsal löggjafarvalds, framkvæmdarvalds og dómsvalds. Það þýðir að völd yfir okkar málum, sem við höfum haft mikið fyrir því að eignast og varið ekki bara árum eða áratugum heldur öldum í að berjast fyrir, yrðu ekki lengur í okkar höndum heldur mestmegnis í höndum erlendra aðila. ESB gengur út á miðstýringu og yfirþjóðlegt vald. Um það verður ekki samið og það er enginn í hópi stjórnarliða sem reynir einu sinni að halda því fram. Þvert á móti hefur það verið margstaðfest, m.a. hér í þingsal, að auðvitað erum við að ganga inn í kerfi sem við myndum verða hluti af og ekki til að breyta því í grundvallaratriðum. Þeir sem halda öðru fram eru að blekkja. Þeir eru að segja ósatt. Það er sem sagt grundvallarforsenda sem þarf að ræða: Erum við til í að ræða það að gefa eftir mjög mikið vald, gefa eftir löggjafarvald, gefa eftir framkvæmdarvald, gefa eftir dómsvald, í skiptum fyrir eitthvað óskilgreint sem við teljum þá að sé mikilvægara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf?

Það hefur reyndar farið minna fyrir því en oft áður en línan um að við fáum sæti við borðið er oft og iðulega notuð af ESB-sinnum. Það er alveg rétt að við yrðum ESB-ríki, okkur stjórnmálamönnum yrði boðið í öll fínustu boðin, við þingmenn þyrftum ekki að sitja aftast á þingmannaráðstefnu og sendiherrarnir okkar fengju miklu betri boð og miklu fínni ferðir. Í ESB væri Ísland hins vegar alltaf smáríki með verulega takmarkað áhrifavald. Ákvarðanirnar við þetta borð eru að langmestu leyti teknar með meirihlutaákvörðunum, af meiri hluta sem fer ekki bara eftir fjölda ríkja heldur líka eftir íbúafjölda. Við fengjum eitt sæti af 28 í framkvæmdastjórn og sex sæti, sex þingsæti, af yfir 700 þingmönnum sem tækju síðan bindandi ákvarðanir um málefni Íslands.

Ég vil að það komi fram, ég vil að það sé skráð í þingsöguna, ég vil að það sé skráð á spjöld sögunnar að ég er á móti því, ég er á móti því að framselja vald sem við Íslendingar höfum í dag yfir til Brussel, til erlendra stjórnmálamanna og til erlendra embættismanna. Það er af því að ég hef óbilandi trú á Íslandi og ég hef óbilandi trú á Íslendingum. Ég tel að það sé enginn betur til þess fallinn en við að halda sjálf á okkar málum, að taka ákvarðanir fyrir okkar hönd. Það sem ég hef fyrir mér í því er ekki bara rómantíseruð hugmynd um hvað sjálfstæði Íslendinga þýðir fyrir okkur. Það eru grjótharðar staðreyndir sem ég hef fyrir mér í því. Frá því að við fengum heimastjórn, svo fullveldi og stofnuðum loks lýðveldið höfum við náð slíkum undraverðum árangri að eftir því er tekið á heimsvísu. Ég hef reyndar margsinnis sagt frá þessu á ferðum mínum og í störfum fyrir þróunarsamvinnu Íslands, m.a. í Afríku. Ég hef sagt þessa undrasögu af því hvernig Ísland fór á þessum skamma tíma frá því að vera eitt fátækasta ríki Evrópu og yfir í að vera eitt það ríkasta ef ekki það ríkasta. Ísland er nefnilega meðal ríkustu landa í heimi. Ísland er eitt öruggasta land í heimi. Á Íslandi er einn mesti jöfnuður sem fyrirfinnst og hér eru jöfnust tækifæri. Íslendingar eru meðal hamingjusömustu þjóða heims og lifa einna lengst. Hér er kynjajafnrétti mest í heimi og mesta atvinnuþátttaka kvenna. Á Íslandi er einhver mesti kaupmáttur launa á byggðu bóli og við höfum líklega besta lífeyriskerfi í heimi. Á Íslandi er hæsta hlutfall endurnýjanlegrar orku og hér er hreinna loft en annars staðar.

Að vera í fararbroddi í langflestum samanburði við önnur lönd þýðir samt ekki að ekki megi alltaf gera betur og þar er stöðugleiki í efnahagsmálum okkur auðvitað ofarlega í huga. Þar eigum við að gera betur. Hér stýrir landinu ríkisstjórn sem lofaði því að ná niður vöxtum og verðbólgu, berja þetta niður með sleggju, og hæstv. forsætisráðherra sem staðhæfði að ESB væri ekki svarið í þeim efnum. En 18 mánuðum síðar hefur þessi sama ríkisstjórn lyppast niður. Hún hefur gefist upp á verkefninu og leitar nú á náðir Evrópusambandsins, tekur upp myndbönd hér í þinginu, myndbönd fyrir framan matvöruverslanir og lofar lægri vöxtum, meiri stöðugleika og lægra matvöruverði bara ef við segjum já í atkvæðagreiðslu hæstv. utanríkisráðherra um viðræður við ESB um aðild Íslands að sambandinu.

Eigum við þá ekki að ræða um það hvort ESB-ríkin hafi það betra en Ísland, hvort ESB-borgarar hafi það betra en Íslendingar? Það hefur borið á því að ESB-sinnar, stjórnarliðar hér á Alþingi, hafi tínt til staðreyndir, hagtölur frá einu og öðru ESB-ríki sem þeim þykja henta umræðuefninu hverju sinni, jafnvel kaffibollaverð í Ungverjalandi. Stjórnarliðar lofa lægri vöxtum ef við göngum í ESB og tökum upp evru. Gott og vel. Um það vil ég segja þetta: ESB krefst stöðugleika, minni verðbólgu og lægri vaxta áður en upptaka evru er samþykkt. Það að ætla að taka upp evru er þess vegna ekki ávísun á stöðugleika heldur alltaf verkefni sem verður að leysa heima fyrir, eins og hæstv. forsætisráðherra hefur reyndar margbent á. Við eigum líka að hafa það í huga að vextir og verðbólga eru misjöfn milli landa innan ESB. Flettið því bara upp. Biðjið netið um lista yfir ESB-ríki og berið sjálf þessar tölur saman.

Þá yfir í aðeins flóknari og fræðilegri hluti. Lágir vextir eru ekki endilega vísbending um heilbrigt hagkerfi heldur jafnvel stöðnun og mikil vandræði. Það er ekki endilega eftirsóknarvert að vera með mjög lága vexti og jafnvel þvert á móti. Við þurfum líka að vita það að lækkun vaxta hækkar húsnæðisverð. Flettið því líka upp ef þið trúið mér ekki. Við sáum það t.d. í Covid. Og hvað þýðir hærra húsnæðisverð? Heildarhúsnæðiskostnaður er ekki bara vaxtagreiðslur, eða er það? Ef húsnæði hækkar þá hækka lán og þá hækka t.d. fasteignagjöld. Eða er það ekki? Flettið endilega upp heildarhúsnæðiskostnaði sem hlutfalli af ráðstöfunartekjum. Þar erum við nálægt meðaltali í samanburði við ESB-lönd, þótt vextirnir hér séu oft hærri.

Við verðum síðan auðvitað að ræða það að með því að taka upp annan gjaldmiðil, t.d. evru, missum við sjálfstæða peningastefnu. Það verða alltaf einhver áföll, utan lands og innan; stríð, olíukreppa, eldgos, Covid. Ef við missum þetta sjálfstæði þurfum við að leiðrétta það með öðrum hætti en gengisfellingu á vöxtum. Hátt atvinnuleysi er ástand sem ESB-ríkin þekkja vel, ekki síst unga fólkið. Flettið þessu upp frá landi til lands, skoðið þetta, berið þetta saman aðeins aftur í tímann. Og áður en við snúum okkur að öðru, spyrjið ESB-sinna að þessu: Ef evran er töfralausn hvað varðar vaxtaumhverfi, af hverju eru þá ekki allir á evrusvæðinu með sömu vexti? Spyrjið ESB-sinna líka að þessu: Af hverju velja sum ESB-lönd að vera ekki með evru og hafa það reyndar alls ekki í hyggju?

ESB-sinnar segja okkur að lífskjör okkar muni batna með inngöngu í ESB. En bíddu nú við, Ísland er nú þegar í efsta sæti á lífskjaralista Sameinuðu þjóðanna og ekki vilja nú alþjóðasinnar í ESB gera lítið úr Sameinuðu þjóðunum, eða hvað? Kannski núna þegar það hentar málstaðnum, í þetta sinn. Ísland er meðal ríkustu landa í heimi, ríkara en velflest lönd ESB og með ein bestu lífskjör í heimi, m.a. á mælikvarða landsframleiðslu á mann. Evrópsk lönd sem standa utan ESB eru þau ríkustu í Evrópu. Er þetta tilviljun? ESB-sinnar segja okkur að samkeppni á Íslandi muni stóraukast við inngöngu í ESB, m.a. á matvöru- og á fjármálamarkaði, og ég velti því þess vegna upp hér: Við erum nú þegar aðilar að innri markaði ESB í gegnum EES-samninginn. Hvað stoppar þessi fyrirtæki í að koma hingað núna? Ekki stoppaði það Costco í að koma hingað, ekki KPMG, ekki PwC, ekki Linde Gas, ekki Alcoa, ekki Rio Tinto, ekki Century Aluminium, ekki Bauhaus, ekki Coca Cola Europacific Partners, ekki Hilton, ekki Berjaya, ekki Edition, ekki Zöru, ekki H&M, ekki Skandia, ekki Sun Life og ekki Allianz. (Gripið fram í.)Af hverju eru ekki allir þessir bankar sem er búið að lofa okkur — og einn stjórnarliði kallar hérna fram í núna — af hverju eru þeir ekki í Færeyjum sem eru með danska krónu sem er tengd við evru? Af hverju eru þessir bankar ekki þar?

Evra tryggir auðvitað ekki sjálfkrafa innreið stórfyrirtækja en þau eru mörg hver hér á heimili íslensku krónunnar. Íslenskur markaður er lítill. Landfræðileg staða gerir flutningskostnað háan og mikla hindrun, íslenskar reglur, m.a. skattar, skýra margt, til að mynda á fjármálamarkaði. Eða mun Evrópusambandið draga Ísland nær meginlandinu? Mun Íslendingum fjölga til muna við inngöngu í Evrópusambandið?

Ég kemst ekki hjá því að nefna matvælaverðið. Það er auðvitað ákveðið lögmál að verðlag er hátt í ríkum löndum. Ég er nýkominn frá Víetnam og það er ódýrt að vera þar. Það heldur því samt enginn fram að við eigum að apa upp stjórnarhættina þar og hvað þá ganga þar inn. Og kaffibollinn er ódýrari í Ungverjalandi. Þeir sem ferðast til Kaupmannahafnar finna samt að það er dýrt að vera í Danmörku. Lágt verð er ekki, ekki frekar en lágir vextir, endilega gæðastimpill og jafnvel síður. Það sem ESB-sinnar segja okkur ekki er að stór ástæða fyrir matvælaverðinu á Íslandi — ef við setjum það til hliðar að við erum fámenn og dreifbýl eyja langt frá meginlandinu og með ein hæstu laun í heimi — ástæðan er til viðbótar við það sú þverpólitíska sátt sem hefur verið hér um háa tolla til að vernda innlenda framleiðslu. Vilja ESB-sinnar afnema þessa vernd? Spyrjið ESB-sinna að því. Það er sami meiri hluti hér á Alþingi fyrir því að ræða við ESB um aðild Íslands og gæti með einni ákvörðun, með einu pennastriki, lækkað matvöruverð á Íslandi. Vill ríkisstjórnin gera það, afnema tollvernd á innlenda framleiðslu?

Virðulegi forseti. Nú fer ég að renna út á tíma og ég hef ekki enn þá farið yfir aðlögunareðli viðræðnanna við ESB, sem er þó staðreynd sem er öllum kunn. ESB veitir jú ekki milljarða á milljarða ofan í aðlögunarstyrki til umsóknarríkja svo þau geti verið að gera upp hug sinn um hvort þeim lítist nú á félagsskapinn sem ESB er. Það bíður þá betri tíma eða kemur í hlut kollega minna hér á þingi að fara betur í það.

Að lokum langar mig að segja að ég hlakka til að kjósa og segja þar nei við aðild Íslands að ESB og viðræðum um þá aðild og ég ætla að nefna fyrir því þrjár ástæður af fjölmörgum:

1. Ég treysti þjóðinni og ég vil að hún haldi áfram sjálf á sínum málum.

2. Ég vil ekki afsala yfirráðum okkar yfir íslenskum auðlindum og nýtingu þeirra, aldrei.

3. Efnahagsleg hnignun Evrópusambandsins er staðreynd sem hefur verið tekin fyrir í nýlegum skýrslum frá Evrópusambandinu og samkeppnisstaða álfunnar og önnur þróun innan ESB er ekki spennandi kostur fyrir Ísland.