Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Það er hægt að færa sterk rök fyrir því að vaxtahækkanir Seðlabankans sem eiga að hemja verðbólguna séu sjálfar orðnar stór orsakavaldur hennar. Fyrirtæki velta auknum vaxtakostnaði út í verðlagið. Jafnhliða dregur úr trú fólks og markaða á að verðbólga minnki sem aftur veldur verðhækkunum og svo koll af kolli. Bygginga- og fasteignamarkaðir eru svo til botnfrosnir. Íbúðir seljast ekki vegna þess að fáir hafa efni á að kaupa þær. Þessi vítahringur snýst ekki bara um hagvaxtartölur. Hann truflar eðlilegan gang lífsins þar sem börn vaxa úr grasi, verða fullorðin, flytja að heiman og stofna fjölskyldu. Einhverjar alvarlegustu afleiðingar þeirra háu vaxta sem ríkt hafa undanfarin misseri er flótti fjölmargra einstaklinga og heimila í verðtryggð lán til að létta á óheyrilegri greiðslubyrði. Það eitt og sér er verðbólguvaldandi því vaxtahækkanir sem eiga að minnka peningamagn í umferð hafa þá ekki tilætluð áhrif á þá tvo þriðju hluta skuldsettra heimila sem eru með verðtryggð lán. Fjölgun verðtryggðra lána veldur enn meiri vaxtahækkunum þegar vaxtahækkunarvopnið virkar nánast eingöngu á aðeins einn þriðja skuldsettra heimila. Áhrif þessa ástands koma m.a. skýrt fram í verðtryggingarmisvægi bankanna. Það var mjög lítið árið 2022 en er núna komið yfir 720 milljarða króna. Í 5,2% verðbólgu framkallar þetta misvægi hagnað hjá bönkunum upp á 37,5 milljarða á ári, eða 3 milljarða á mánuði. Þetta fjármagn verður ekki til úr engu. Það er að mestu leyti tekið frá heimilum landsins. Þessir 720 milljarðar eru um 90% af eigin fé bankanna. Seðlabankastjóri kvaðst hins vegar ekki hafa áhyggjur af því þegar hann var spurður um það á opnum fundi í efnahags- og viðskiptanefnd í síðustu viku. Áhyggjuleysi Seðlabankastjóra er áhyggjuefni út af fyrir sig. Það hlýtur líka að teljast fullkomlega óeðlilegt að bankarnir sem geta ráðið mestu um verðbólgustig í landinu geti grætt svona ótæpilega á því að halda verðbólgunni uppi svo lengi sem raun ber vitni og valda þar með öllum öðrum í samfélaginu tilheyrandi skaða.
Það hefur sýnt sig að vaxtahækkanir virka ekki. (Forseti hringir.) Við þurfum að leita nýrra leiða. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)