157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

Störf þingsins.

[15:16]
Horfa

Ása Berglind Hjálmarsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég verð 42 ára í sumar. Öll mín fullorðinsár hefur umræðan um Evrópusambandið hangið eins og mara yfir þjóðinni. Tækifæri til að fá að vita hvað það myndi raunverulega þýða að klára samning var hrifsað af okkur án aðkomu þingsins. Tækifæri til að sjá það með eigin augum hvernig Íslandi gæti farnast í bræðralagi Evrópulanda. Í staðinn höfum við þurft að hafa, leyfist mér að segja, hundleiðinlega umræðu hangandi yfir okkur ár eftir ár þar sem misvitrir stjórnmálamenn og annað málsmetandi fólk hefur reynt að sannfæra okkur um ýmist ágæti þess að ganga í Evrópusambandið eða hvernig allt fari hér á heljarþröm gangi þjóðin í Evrópusambandið.

Virðulegi forseti. Ég er virkilega stolt af því að tilheyra Samfylkingunni og þessum risastóra fallega ríkisstjórnarþingflokki eins og hæstv. ráðherra, Inga Sæland, talar gjarnan um. Fólkið sem stendur með þjóðinni, vill gefa henni kost á að ákveða hvert skuli stefna. Vill þjóðin fá að sjá með eigin augum hvernig það gæti litið út að fá nýjan gjaldmiðil, stöðugra efnahagsumhverfi, meiri samkeppni og minni fákeppni, lægri vexti, fleiri sjóði fyrir fólk í nýsköpun og lægri fjármagnskostnað fyrir stórframkvæmdir á Íslandi? Í staðinn fyrir að borga um 11% vexti í framkvæmd eins og Ölfusárbrú gætum við fengið aðgang að lánum hjá Evrópska fjárfestingarbankanum fyrir jafnvel 1–2%. Ölfusárbrú kostar um 18 milljarða sem þýðir að við gætum að öllum líkindum sparað um 1,7–1,8 milljarða. Það væri hægt að nýta svoleiðis upphæðir til að búa börnum okkar betra umhverfi, fjárfesta í heilbrigðiskerfinu eða fara í fleiri vegaframkvæmdir. Vill þjóðin fá að sjá hvernig þetta gæti litið út? Vill þjóðin fá að vita hvort við gætum haft það betra, hvort börn okkar og barnabörn gætu haft það betra? Ég er stolt af því að tilheyra hópi stjórnmálafólks sem treystir þjóðinni til að taka þessa ákvörðun.

Virðulegi forseti. Ég veit ekki hvort ég segi já við því að ganga í Evrópusambandið ef við komumst áfram í samningaviðræður eftir fyrri þjóðaratkvæðagreiðsluna, það kemur í ljós þegar ég hef séð samninginn, en ég segi skýrt já þann 29. ágúst.