157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

Störf þingsins.

[15:19]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Flf):

Virðulegur forseti. Mikil ásókn erlendra fjárfestingarfyrirtækja er eftir því að reisa vindmyllugarða á Íslandi. Þar eru á ferðinni erlendir einkafjárfestar sem vilja mjólka verðmæti og arð út úr starfseminni og umbreyta þar með íslenskri náttúru með alvarlegum afleiðingum. Komið hefur fram að sóst hefur verið eftir að reisa vindmyllugarða á yfir 40 stöðum í landinu. Það var ánægjulegt að heyra að þrjú framboð í Borgarbyggð voru á móti uppbyggingu vindorkuvera í sveitarfélaginu. Í Garpsdal í Reykhólahreppi eru uppi hugmyndir af hálfu írskra fjárfestingarfyrirtækja um að reisa vindorkuver með 21 vindmyllu uppi á fjalli. Hver og ein þeirra mun verða hærri en tveir Hallgrímskirkjuturnar. Heimamenn eru lokkaðir með því að fá heilar 18,5 milljónir á ári í staðinn í sérstakan sjóð. Áhrifin á Dalina, Vestfirði og Strandir verða gríðarleg og steypan sem sett verður í fjallið óafturkræf, svo ekki sé minnst á sjónræn áhrif, hávaða, plastmengun og hættu fyrir fuglalíf og haferni. Mikið álag og rask fylgdi því að koma vindmyllunum á staðinn og yrði af framkvæmdunum mikil sjónmengun og það myndu skapast fá varanleg störf sem engin trygging væri á að heimamenn fengju. Sama má segja um orkuna en engin trygging væri á að hún færi til að auka raforkuöryggi á Vestfjörðum heldur réði markaðurinn þar ferðinni og eftirspurn orkufrekra stórnotenda á suðvesturhorninu líklegustu kaupendurnir eins og gagnaver. Miklir þungaflutningar hafa verið á efni í vindmylluna í Vaðölduveri á vegum Landsvirkjunar en þar er verið að reisa fyrsta vindorkuver landsins. Það er ákveðin tilraunastarfsemi sem er á röskuðu og afmörkuðu svæði og ættum við að sjá hvað kemur út úr því áður en lengra er haldið.

Það er mikilvægt að fara sér hægt í þessum efnum [Kliður í þingsal.] og hleypa ekki erlendum gróðafyrirtækjum í orkuframleiðslu á Íslandi á kostnað okkar stórkostlegu náttúru sem dregur yfir 90% ferðamanna til landsins. Skammtímagræðgi má ekki ná völdum. Það þarf að koma vindorkunni í ábyrga auðlindanýtingu þar sem náttúran nýtur alls vafa og heildarásýnd landsins ber ekki varanlegan skaða af.

(Forseti (ÞSv): Forseti biður þingmenn í hliðarsölum að gefa gott hljóð.)