157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

Störf þingsins.

[15:26]
Horfa

Sandra Sigurðardóttir (V):

Virðulegi forseti. ART stendur fyrir, með leyfi forseta, Aggression Replacement Training og er fastmótað uppeldisfræðilegt þjálfunarmódel sem miðar að því að fyrirbyggja óæskilega hegðun og kenna börnum og ungmennum betri leiðir til að takast á við samskipta-, tilfinninga- og hegðunarvanda. Módelið á rætur sínar í sálfræði og atferlismótun. Í ART er unnið markvisst með þrjá lykilþætti, félagsfærni, sjálfsstjórn og siðferðisvitund og með því að vinna með þessa þætti samhliða næst betri og varanlegri árangur. ART fellur einstaklega vel að aðalnámskrá grunnskóla. Þar er lögð áhersla á lífsleikni, sjálfsmynd, samskipti og ábyrgð, auk lykilhæfni á borð við sjálfstæði, samvinnu og tjáningu. Þjálfunin styður beint við þessa þætti með því að efla hæfni barna til að skilja tilfinningar sínar, eiga uppbyggileg samskipti og taka ábyrgð á eigin hegðun. Mikilvægi ART felst í því að brúa bilið milli kerfa og þjónustustiga. Það er bæði forvarnaúrræði og sértæk meðferð sem nýtist í annars og þriðja stigs þjónustu, þar sem unnið er með börnum og fjölskyldum sem þurfa aukinn og samfelldan stuðning. Verkefnið hefur sýnt fram á gríðarlega jákvæð áhrif á líðan barna, velgengni í skóla, samskipti innan fjölskyldna og færni til að takast á við daglegt líf.

Forseti. Til að tryggja áframhaldandi árangur er hins vegar nauðsynlegt að fjármögnun sé bæði næg og fyrirsjáanleg. Undanfarin ár hefur samningurinn við ART-teymið verið til eins árs í senn og fyrirsjáanleikinn enginn. Ég fagna því mjög að hæstvirtur barna og menntamálaráðherra hafi átt fund með ART-teyminu fyrir skemmstu og bind miklar vonir við það að ráðherra skoði það vandlega að gera langtímasamning og auka fyrirsjáanleikann. Það gerir okkur kleift að byggja upp þjónustuna, fjölga sérfræðingum og tryggja að öll börn, óháð búsetu, hafi aðgang að ART-úrræðum.

Forseti. Með stöðugri fjármögnun og skýrri framtíðarsýn getum við tryggt að ART haldi áfram að vera öflugt verkfæri í þágu barna og fjölskyldna um allt land.