157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

Störf þingsins.

[15:28]
Horfa

Grímur Grímsson (V):

Frú forseti. Í apríl síðastliðnum ferðaðist ég ásamt hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur til Víetnams í hópi þingmanna frá EFTA-ríkjunum fjórum sem eru auk Íslands, Noregur, Sviss og Liechtenstein. Ár hvert heimsækja formaður og varaformaður þingmannanefndar EFTA og EES ásamt kollegum úr hinum þjóðunum land hvar viðræður við EFTA um fríverslunarsamning eru langt komnar. Hlutverk hinnar sameiginlegu þingmannanefndar EFTA-þjóðanna er að hitta þingmenn og eftir atvikum embættismenn viðkomandi þjóðar og leggja lóð á vogarskálar þess að góður samningur náist og jafnvel að samningaviðræður komist yfir hjalla sem kunna að vera á leiðinni að niðurstöðu. Í þessum ferðum er einnig heimsókn fyrirtækja frá EFTA-löndunum sem hafa starfsemi í landinu og fengnar upplýsingar um starfsemi, starfsumhverfi og hvernig fríverslunarsamningur kunni að verða þeim til hagsbóta í sinni starfsemi. Heimsóknir þessar eru skipulagðar af EFTA-skrifstofunni í samráði við sendiráð EFTA-ríkjanna í viðkomandi landi. Oftast er það svo að Noregur og Sviss eiga sendiráð í ríkjunum en sjaldnar Ísland eða Liechtenstein.

Víetnam er vaxandi markaður á margan hátt. Þangað hafa mörg fyrirtæki flutt starfsemi sem áður var í Kína og svo virðist sem starfsumhverfi sé vel viðunandi fyrir erlenda fjárfestingu. Oft er það svo að framleiðsla í ríkjum þar sem vinnuaflið er ódýrt er flutt jafnharðan úr landinu, sem er í rauninni Víetnam, en það er líka vaxandi neytendamarkaður. Svo dæmi sé tekið flytja Norðmenn þangað mikinn eldislax og tengist það að einhverju leyti miklum uppgangi japanskra veitingastaða í landinu sem bendir til aukins kaupmáttar. Hagsmunir íslenskra fyrirtækja eru ekki ýkja miklir í Víetnam. Þó er fluttur þangað á vegum norskra aðila lax alinn hér við land. Þá er óhætt að segja að það eru mikil tækifæri í Víetnam í margs konar starfsemi sem vert er fyrir íslensk fyrirtæki að skoða hvort henti þeirra starfsemi. Viðræðum EFTA-ríkjanna við Víetnam er ekki lokið en þær eru langt komnar og verður vonandi lokið innan ekki mjög langs tíma.