Störf þingsins.
Ríðum heim til Hóla segir í kvæðinu góða sem við ólumst mörg upp við. Það er einmitt einstakt að koma að Hólum í Hjaltadal því að þar slær hjarta Íslandssögunnar ört. Þar drýpur sagan af hverju strái. Þar bjuggu helstu höfðingjar Íslands og þar var háð ein frægasta orrusta Sturlungaaldar. Þar var biskupssetur um sjö alda skeið og þar þjónuðu tugir íslenskra og erlendra biskupa. Þannig urðu Hólar eitt af fyrstu menntasetrum landsins. Þar voru bækur prentaðar og árið 1882 var þar formlega stofnaður skóli og undanfarna áratugi hefur farið fram þar fjölþætt menntun á háskólastigi. Nú stendur til að samþykkja lög um samþættingu háskóla. Margt er gott í því frumvarpi en það kviknar rautt ljós þegar horft er á mögulega samþættingu minni háskóla á landsbyggðinni við þá stærri. Maður veltir fyrir sér hvort hér sé verið að horfa á vanfjármögnun minni háskóla til að ýta þeim inn í slíkar samstæður. Það kann að vera góð lausn, virðulegi forseti, fyrir suma leikendur en Ísland á ekki marga staði líkt og Hóla í Hjaltadal. Það er enginn venjulegur staður. Hólar í Hjaltadal eru okkar Notre Dame, okkar Westminster Abbey. Á Hóla í Hjaltadal skal horfa með allt öðrum hætti en sem byggingar sem þarf að ráðstafa, rekstur sem þarf að besta eða nám sem þarf að samþætta. Við erum að horfa á eitthvað miklu stærra en það. Ef við gefumst upp á framtíð Hóla, hvað er þá næst? Ætlum við að gefast upp á framtíð Þingvalla? Hvernig má það vera að þegar að við Íslendingar áttum ekki neitt efnislega fjárfestum við í framtíð innviða á miklu metnaðarfyllri hátt, en nú þegar við eigum meira fjármagn, erum ríkari þjóð, þá höfum við yfirgefið þessa hugsun? (Forseti hringir.) Gerum það ekki heldur sækjum í hana á ný. Hólar hafa einstaka sögu, sérstöðu og arfleifð sem gefur vigt. (Forseti hringir.) Hólar slá djúpa tóna og hafa grunn sem getur skapað meiri hljóm. Byggjum upp framtíð Hóla í Hjaltadal. Framtíð Íslands á það skilið.