157. löggjafarþing — 111. fundur,  27. maí 2026.

Störf þingsins.

[15:35]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því í mestu vinsemd að frábiðja mér það að ég og þingmenn Sjálfstæðisflokks höfum ekki staðið vaktina í þessu ESB-máli. Menn geta haft allar skoðanir á meiri hlutum í mismunandi sveitarfélögum en ef menn í alvöru vilja afstýra því slysi sem þessi ríkisstjórn stendur fyrir þá sameinumst við gegn þessari tillögu, þ.e. við viljum fá nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni.

Ég er hér kominn til að tala um ógn í tengslum við þessa þjóðaratkvæðagreiðslu sem eru falsfréttir. Hér koma hæstv. ráðherrar og stjórnarliðar og miskunnarlaust dreifa falsfréttum. Evrópusambandið gengur út á það að við tökum völd sem við eigum og höfum fengið og færum þau til Brussel. Við tökum fjármuni sem eru hér á Íslandi sem eru notaðir í samgöngur, heilbrigðismál og ýmislegt annað og færum til Brussel. Sérhagsmunirnir eru skýrir og ég hvet alla til að skoða launakjör, skattaumhverfi og lífeyrisréttindi starfsmanna ESB í Brussel og annars staðar. Hér hefur því verið skrökvað af hálfu ráðherra að ESB-rétturinn muni ekki gilda ef við göngum inn. Hann mun gilda. Það þýðir að það er sama hvaða lög við samþykkjum hér; ef við förum inn þá víkja þau ef þau eru ekki í samræmi við lög ESB. Því hefur verið haldið fram að við förum ekki í aðlögun. Það er rangt. Því hefur verið haldið fram hér í fullri alvöru að íslenskir lífeyrissjóðir séu í gjaldeyrishöftum. Það er kolrangt. Því hefur verið haldið fram að við fáum í fyrsta skipti erlend tryggingafélög. Það eru tugir þúsunda Íslendinga tryggðir hjá erlendum tryggingafélögum. Og hér er því haldið fram að við séum 75–80% í Evrópusambandinu. Allt tóm þvæla. Það að lofa hér að allt í einu lækki verðbólga og vextir ef við göngum í Evrópusambandið (Forseti hringir.) eru hrein og klár ósannindi. Og þegar fyrirtæki gera upp í evrum þá þýðir það ekki að þau séu inni í Evrópusambandinu eða í því umhverfi.

Það er alveg með ólíkindum, (Forseti hringir.) virðulegi forseti, og grafalvarlegt þegar hæstv. ríkisstjórn og stjórnarliðar viljandi og vitandi vits, á samfélagsmiðlum og annars staðar, dreifa falsfréttum. Ég segi við þá: (Forseti hringir.) Þið eruð ekki í neinni stöðu til þess að gagnrýna erlenda aðila sem dreifa falsfréttum vegna þess að þið gangið fremst á meðal jafningja og þegar talað er um sérhagsmuni, lítið ykkur nær.

(Forseti (ÞSv): Forseti minnir vinsamlegast á að ræðutíminn í störfum þingsins er tvær mínútur.)