gögn um Evrópusambandið.
Virðulegur forseti. Við ítrekuðum hér enn og aftur, eins og fram hefur komið, kröfu um að leynd verði aflétt af gögnum í svokölluðu leyniherbergi. Ég vakti líka athygli á því undir miðnætti í gær hér í fundarstjórn forseta að á heimasíðum sem ég sé að a.m.k. einhverjir hæstv. ráðherrar Viðreisnar úr ríkisstjórninni eru að auglýsa hér sem hlutlausa upplýsingasíðu, síðu fyrir upplýsingar um þessa þjóðaratkvæðagreiðslu, á vegum einhvers gervimanns og gervimennis, er vísað í gögn, nánar tiltekið eitthvað sem kallað er „talpunktar-1(.txt)“ sem sagðir eru hluti af þeim upplýsingum sem stjórnvöld hafa lagt fram varðandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Íslands við ESB. Það hefur ekki verið byggt á neinum sérstökum opinberum miðli sem notandinn getur vísað beint í heldur er það með í þeim gagnasöfnum sem undirbúa og styðja upplýsingar til almennings og eru notuð af stjórnvöldum í kynningum og umræðum um málið. (Forseti hringir.) Ég hef óskað eftir því og kallað og spurt hér: Hvaða talpunktar af hálfu stjórnvalda liggja þarna að baki sem ekki eru opinber gögn en hafa greinilega verið afhentir einhverju gervimenni í þágu heimasíðugerðar í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB?