157. löggjafarþing — 111. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[00:14]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M):

Herra forseti. Mig langar í þessari ræðu að fjalla um rangfærslur sem að einhverju leyti hefur verið haldið fram af fylgjendum þessarar aðildarvegferðar, meintu aðildarvegferðar Íslands að Evrópusambandinu. En það er þannig að fylgjendur afsals Íslands af sjálfsákvörðunarrétti sínum sem fullvalda þjóðar hafa gjarnan gefið í skyn að um leið og gengið er í ESB muni vextir og verðbólga lækka með nýjum gjaldmiðli. Þetta eru hrein og klár ósannindi. Hvers vegna segi ég þetta? Þau ríki sem ganga í Evrópusambandið í dag og taka upp evru þurfa að uppfylla ströng efnahagsleg skilyrði áður en viðkomandi ríki fær að taka upp hinn sameiginlega gjaldmiðil. Þau skilyrði eru öllum ljós sem kynna sér þau en þessi skilyrði kallast Maastricht-skilyrði. Þetta þýðir að áður en Ísland gæti tekið upp evru sem gjaldmiðil þyrfti ríkisstjórnin m.a. að ná eftirfarandi: Verðstöðugleika með lágri verðbólgu, lágum langtímavöxtum, stöðugleika í gengismálum, lágum halla í rekstri hins opinbera og minna en 60% skuldum af vergri landsframleiðslu.

Þetta þýðir að áður en nýr gjaldmiðill er mögulegur þurfa Íslendingar að ná eftirfarandi: Það þarf að ná niður verðbólgu, það þarf að ná niður vöxtum, það þarf stöðugt gengi, minnka halla og lækka skuldir ríkissjóðs. Þetta hlýtur að segja okkur að allt tal um lægri vexti og verðbólgu með inngöngu í Evrópusambandið er blekking því við þurfum að ná tökum á hvoru tveggja sjálf áður en möguleiki á evru skapast. Þessu er mikilvægt að halda til haga vegna þess að blekkingaleikurinn hefur verið alger, m.a. hér í þingsölum Alþingis, þegar því er haldið fram að allt reddist og það sé svo mikið skjól í þessu Evrópusambandi. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur væri nær að einbeita sér að því að snúa við því vaxta- og verðbólguhækkunarferli sem leggst nú þungt á þjóðina. Það ætti að vera forgangsmál. Mál sem raunar var töluvert rætt í aðdraganda síðustu kosninga, ólíkt málinu sem hér er fjallað um, Evrópusambandsaðild. Ég er þeirrar skoðunar að hér sé kolröng forgangsröðun ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur en það náttúrlega orsakast væntanlega af æðibunugangi utanríkisráðherra Viðreisnar, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, sem hefur heimtað að rífa þetta mál áfram. Auðvitað er það svo að Samfylkingin er með þetta mál líka á stefnuskrá sinni en þetta var ekki kosningamál í síðustu alþingiskosningum, þannig að það er alltaf verið að blekkja kjósendur. Það er verið að blekkja kjósendur í öllum kosningum. Það er sorglegt. Þetta var ekki kosningamál í síðustu kosningum og forðuðust raunar ráðamenn þjóðarinnar að ræða þetta mál og sögðu þetta ekkert vera á dagskrá. Síðan er þetta á dagskrá en þetta er ekki á þingmálaskrá. Þetta mál fer ekki í samráðsgátt. Þetta mál er kynnt erlendis. Það er ekki kynnt innan lands fyrr en það er komið hér inn í þingsal, kynnt raunar fyrst á blaðamannafundi úti í bæ. Alveg magnað.

Ég ætlaði reyndar að fara í umsögn Birgis Ármannssonar í þessari ræðu en það verður að bíða betri tíma, mögulega í næstu ræðu þannig að ég óska eftir því að vera sett aftur á mælendaskrá.