þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Aðeins áður en ég held áfram yfirferð minni yfir þá umsögn sem ég var með til umfjöllunar hér áðan þá skulum við hafa í huga inn í hvað aðildarsinnar vilja ganga. Ég fór ágætlega yfir það hér í ræðu í kvöld að það er ekki til neitt sem heitir Evrópuvextir, það er ekki til neitt sem heitir Evrópuverðbólga og það er ekki til neitt sem heitir Evrópuatvinnuleysi. Þetta er meira og minna ólíkt milli þjóða, sumt undir því sem er hjá okkur, annað yfir. Það eina sem er kannski augljóslega á fjöldamörgum stöðum mun hærra en hér og fer hækkandi, því miður, og hefur verið að gera það undanfarin misseri og ár, er atvinnuleysi ungs fólks. Það er það bandalag sem er til umræðu hér og einhverjir vilja ganga í.
Herra forseti. Til að ljúka þessari yfirferð yfir umsögn sem ég var að fjalla um, sem var send inn af Frosta Sigurjónssyni, vildi ég, með leyfi forseta, grípa hér niður:
„Auk þessa atriðis með útgönguna hafa málsmetandi hagfræðingar bent á að útganga úr myntbandalaginu sé ekki raunhæfur valkostur. Engin ákvæði eru í sáttmálum eða reglum ESB um hvernig aðildarríki myntbandalagsins geti gengið úr því og tekið upp sjálfstæðan gjaldmiðil á ný á öruggan hátt.
Það er því ljóst að fyrst kostnaður við útgöngu úr ESB er gríðarlegur verða aðildarríkin að sætta sig við þær ákvarðanir sem teknar eru í Brussel. Neitunarvald einstakra ríkja, sem áður var algengara og mikilvægasta tæki fámennra ríkja til að gæta hagsmuna sinna í samstarfinu, hefur með uppfærslum á sáttmálum ESB verið fellt niður á sífellt fleiri málefnasviðum.
Með inngöngu myndi Ísland því halda fullveldi sínu aðeins að nafninu til en ekki í raun og veru. Ísland yrði auk þess eitt af fámennustu ríkjum ESB og hefði því nær engin áhrif á ákvarðanir ESB. Fyrir Ísland væri útganga enn erfiðari en hún reyndist Bretlandi og sennilega óframkvæmanleg eftir að evra væri tekin upp.“
Ástæðan fyrir því að ég vildi lesa þetta upp er að þessi umsögn er algerlega samhljóma fleiri umsögnum sem við höfum hér vitnað til þannig að hér er ekki um að ræða bara einn og einn fræðimann eða aðra aðila sem eftir atvikum hafa mikla þekkingu á Evrópusambandinu sem eru að senda inn slík varnaðarorð um hvurs lags ríkjasamband Evrópusambandið er.
Mér vinnst ekki tími til að fara djúpt í það og ég byrja þess vegna neðarlega, herra forseti, en í grein sem birtist 26. maí síðastliðinn undir fyrirsögninni „Tala nú um engar „óafturkræfar breytingar““, undir millifyrirsögninni „Vinda þyrfti ofan af bákninu“, er rakið hversu erfitt það hefur reynst ríkjum heilt yfir að minnka eða stöðva vöxt báknsins. Þrátt fyrir að flokkar hafi farið í kosningabaráttu og lofað því að minnka báknið hefur það enn þá aldrei tekist. Hér erum við hins vegar ekki bara að tala um núverandi bákn á Íslandi heldur bákn sem þyrfti að þenja verulega út til að standast þær kröfur sem Evrópusambandið gerir til ríkja sem eru í aðlögunarferli. Það þyrfti með öðrum orðum að blása báknið verulega út, fjölga starfsmönnum sem næmi hundruðum, bara til þess eins að vinna að aðlögunarviðræðunum og það myndi yfirtaka meira og minna ráðuneyti og ríkisstofnanir í öllu aðildarferlinu.
Við getum rétt ímyndað okkur, herra forseti, miðað við hvernig hefur gengið að hefta þenslu báknsins hér heima, hvernig það myndi ganga að vinda ofan af slíkum vexti. Ef niðurstaðan yrði svo sú, sem ég tel líklega, eftir langar, tímafrekar og kostnaðarsamar aðildarviðræður eða aðlögunarviðræður að þjóðin vildi alls ekki ganga þarna inn þyrfti að ráðast í það risastóra verkefni að fara að vinda ofan af öllum þeim vexti og þenslu báknsins sem átt hefði sér stað á þeim tíma sem aðlögunarviðræðurnar færu fram. Við getum rétt ímyndað okkur hvernig okkur gengi það verkefni miðað við hvernig okkur hefur gengið að halda bara utan um íslenska báknið eins og það lítur út í dag.