157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

afstaða ráðherra til samningsmarkmiða Íslands í aðildarviðræðum við ESB.

[10:47]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Ég hef hér í óundirbúnum fyrirspurnatíma reynt að fá fram hjá hæstv. utanríkisráðherra afstöðu hennar til samningsmarkmiða Íslands í ýmsum málum og það hefur lítið gengið. Við erum auðvitað öll sammála um að það eigi að halda á lofti hagsmunum Íslands og ég dreg ekki í efa að allir hér inni séu þeirrar skoðunar að það eigi að halda þeim hátt á lofti og það kemur fram í nefndarálitum í þessu máli. Hins vegar þarf auðvitað að liggja fyrir hvað ríkisstjórnin telur t.d. góðan samning. Hæstv. forsætisráðherra svaraði hér fyrirspurn og vísaði í góðan samning. Hvað felst í góðum samningi, t.d. í tilfelli málefna auðlinda Íslendinga? Hvað væri góður samningur í þeim efnum? Ég vil spyrja hæstv. atvinnuvegaráðherra, sem fer auðvitað með yfirstjórn okkar helstu auðlinda, auðlinda hafsins, í þessum efnum, hvort hún geti ekki svarað því fyrir sitt leyti hvað hún teldi góðan samning þegar kemur að því. Ég get svarað því fyrir mitt leyti. Fyrir mitt leyti væri það góður samningur eða góður árangur í samningaviðræðum að ná 100% varanlegri undanþágu frá sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins og öllum öðrum reglum Evrópusambandsins sem lúta að auðlindum hafsins. Ég nefni það hér og hef gert það ítrekað í þingsal þannig að í aðdraganda þessarar þjóðaratkvæðagreiðslu þurfi þjóðin ekki að velkjast í vafa um afstöðu mína eða Miðflokksins í þeim efnum. En hver er afstaða hæstv. atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsráðherra í þessum efnum? Ætlar hæstv. ráðherra að leggja fram og kynna þessa afstöðu fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna fyrir þjóðinni, ekki fyrir Evrópusambandinu heldur fyrir þjóðinni? Hver er afstaða hennar til góðs árangurs að þessu leyti?