157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

afstaða ráðherra til samningsmarkmiða Íslands í aðildarviðræðum við ESB.

[10:53]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Frú forseti. Ég þakka aftur fyrirspurnina. Það er ekkert hægt að vera skýrari en það að meginmarkmið við aðildarviðræður, komi til þeirra, er að halda meginforræði yfir þjóðarsjávarauðlindinni, halda forræði yfir sjávarauðlindinni. Samningarnir eru ekki byrjaðir. Við erum, líkt og hæstv. forsætisráðherra kom inn á hér áðan, að stíga það óvanalega skref að leyfa þjóðinni að ráða því hvort við förum í samningaviðræður. Og það er býsna sérstakt af hálfu þeirra sem vilja það ekki að fara mjög glatt á milli þess að krefjast þess að við leggjum samningsmarkmiðin niður algjörlega skýrt núna og gagnrýna síðan að við séum að tala um hvað við ætlum að gera í samningaviðræðum áður en umboð þjóðarinnar er komið. Komi umboð þjóðarinnar, vilji meiri hluti þjóðarinnar halda dyrunum opnum og átta sig á þeim tækifærum sem felast í því fyrir land og þjóð að ganga til liðs við aðrar Evrópusambandsþjóðir, þá förum við í samningaviðræður. Markmiðin eru skýr: Við munum ekki gefa eftir forræði okkar yfir þeim auðlindum sem við höfum.