157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

aðkoma þjóðarinnar að samningi um aðild Íslands að ESB.

[10:59]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra kærlega fyrir svarið. Ég ætla að reyna að halda mig við kjarna máls, mér hefur nú verið það tamt í gegnum tíðina og mér finnst við einmitt vera að ræða um kjarna málsins. Við erum að ræða um þjóðaratkvæðagreiðsluna og mér finnst, virðulegur forseti, og hæstv. forsætisráðherra verður bara að gefa mér það að mér finnst þetta óskýrt. Mér finnst það óskýrt að segja að þjóðin eigi fyrsta og síðasta orðið og segja svo næst að við munum ekki koma heim nema með góðan samning. Við munum ekki koma með slæman samning. Hvað ef þessir samningar nást ekki eða samningurinn er ekki góður að mati hæstv. forsætisráðherra? Hvað gerist þá? Ég bara spyr hæstv. forsætisráðherra: Hver eru skrefin þá? Hver er aðkoma þjóðarinnar þá?