157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

aðkoma þjóðarinnar að samningi um aðild Íslands að ESB.

[11:01]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Kjarni máls er þessi: Við munum aldrei, Ísland mun aldrei ganga inn í Evrópusambandið nema að afloknum tveimur atkvæðagreiðslum. Það er kjarni máls. Ísland gengur ekki í Evrópusambandið nema eftir að þjóðin hefur sagt já tvisvar. Það er ekki nóg að segja já einu sinni. Það þarf að segja já tvisvar. Það er kjarni máls. Þjóðin mun eiga fyrsta og síðasta orðið um það hvort hún hefur það ferli að ganga inn í Evrópusambandið eða hvort hún lýkur því ferli að ganga inn í Evrópusambandið. Um það snýst þessi umræða. Útgangspunkturinn er að ef við fáum umboð í haust þá munum við að sjálfsögðu gera okkar allra besta til að fylgja þeim samningsmarkmiðum. Það eru forsendur þess að við fáum góða samninga.