samningsmarkmið í viðræðum við Evrópusambandið.
Virðulegur forseti. Já, hvað sem hæstv. forsætisráðherra þykir um orðhengilshátt eða annað þá eru þessir hlutir ekki nægjanlega skýrir enn þá. Ég vil minna hæstv. forsætisráðherra á það að í 1. umræðu um þessa þingsályktunartillögu töldu stjórnarliðar að þetta væri algerlega skýrt. Þegar umsögn landskjörstjórnar lá fyrir hélt hæstv. utanríkisráðherra því líka fram hér í pontu að það væri algjörlega skýrt hvað væri verið að spyrja þjóðina um. Engu að síður hefur spurningin nú verið aðlöguð. Yfirlýsingar hæstv. forsætisráðherra og hæstv. utanríkisráðherra eru ekki algerlega samhljóða. Hæstv. utanríkisráðherra segir að nú sé atkvæðagreiðsla um að klára samninga, ljúka viðræðum við Evrópusambandið, á meðan hæstv. forsætisráðherra segir að atkvæðagreiðslan snúist um að hefja viðræður og kannski klára ef hlutir ganga upp. Þetta er ekki alveg það sama og fyrir þá sem sátu fund með Feneyjanefndinni og landskjörstjórn þá var það nákvæmlega þetta sem þurfti að vera skýrt. Spurningin þarf að vera skýr en það þarf líka að vera alveg skýrt hvað svarið þýðir. Hvað þýðir já í atkvæðagreiðslunni? Það er ekki alveg skýrt.
Mig langar því að spyrja hæstv. forsætisráðherra og gefa henni tækifæri til að útskýra enn betur þennan mun á orðræðu hæstv. utanríkisráðherra og hæstv. forsætisráðherra: Hvað ef hæstv. utanríkisráðherra þykir kannski samningurinn bara alveg ágætur en hæstv. forsætisráðherra þykir hann kannski bara svona skítsæmilegur, fer hann þá í þjóðaratkvæðagreiðslu? Mun þá hæstv. forsætisráðherra leggja til annað þrepið, sem er að greiða atkvæði um það hvort Ísland eigi að ganga inn í Evrópusambandið?