157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[12:05]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Frú forseti. Ég ætla að halda áfram til að reyna að klára lykilpunktana í svokallaðri Draghi-skýrslu. Það er mikilvægt að þetta komi fram því að Draghi-skýrslan fer vel inn á þau vandamál sem Evrópusambandið stendur frammi fyrir. Mario Draghi er fyrrverandi forseti Seðlabanka Evrópu. Þetta er Evrópusambandið sem ríkisstjórnin vill sækja um aðild að.

Við vorum aðeins búin að fara yfir það hvernig Evrópa er að dragast aftur úr, sérstaklega Bandaríkjunum og Asíu, hvernig reglugerðarvæðingin er að fara með samkeppnishæfnina, hvernig ungt fólk í Evrópusambandinu, yfir 50%, telur sig ekki ná endum saman, hvernig tækniframfarir innan Evrópusambandsins eru verulega að dragast aftur úr og við fórum yfir risastórt mál sem er það að ef Ísland ákveður að ganga í Evrópusambandið þá mun Ísland vera eitt þeirra landa sem munu þurfa að taka þátt í innviðaskuld Evrópusambandsins. Það er mikið rætt um innviðaskuld hér á Íslandi en ef við værum komin í Evrópusambandið þá þyrftum við líka að taka þátt í innviðaskuld Evrópusambandsins. Þar er talið að það þurfi 750–800 milljarða evra viðbótarfjárfestingu á hverju ári út af innviðaskuld, eitthvað sem Ísland hafði kannski ekkert með að gera hér áður en þetta er það sem við erum að fara inn í. Orkukostnaður í Evrópusambandinu er risastórt vandamál. Við vorum komin að 7. liðnum. Það eru varnarmálin og sjálfstæði Evrópu. Skýrslan tengir nefnilega þessa skertu samkeppnishæfni við marga liði. Það er til að mynda á sviði varnarmála, á sviði matvælaöryggis og það er komið vel inn á það að Evrópusambandið þurfi að vera að vinna í því að vera minna háð öðrum löndum og þá sérstaklega Bandaríkjunum og Asíu. Mario Draghi telur einnig að Evrópa þurfi að byggja upp sterkari iðnað og sameina betur varnarmál milli landanna. Það er vissulega aðeins byrjað núna en hann vill meiri miðstýringu og segir að það þurfi verulega aukna framleiðslu innan Evrópu.

Þessi skýrsla kom út 2024. Vandamálin hafa eiginlega bara aukist síðan þá. Það sem gerir þessa skýrslu sérstaka er að þetta er ekki gagnrýni frá andstæðingum Evrópusambandsins á Íslandi eða andstæðingum Evrópusambandsins úti í heimi heldur frá mjög áhrifamiklum manni innan evrópska kerfisins og fáir þekkja betur til. Í raun og veru er kjarni boðskapar skýrslunnar og boðskapar Marios Draghis sá að Evrópa geti ekki haldið áfram með sama hætti ef það á að halda lífskjörum innan Evrópusambandsins, velferðarkerfunum í lagi og styðja við alþjóðlega samkeppnishæfni. Þetta mun ekki ganga upp ef Evrópusambandið breytir ekki um kúrs. Nú þegar hefur það ekki breytt um kúrs. Það er samt búið að átta sig á vandamálinu en vandamálið er það stórt og báknið orðið það stórt að það virðist ekki hafa tekist að snúa við blaðinu og byrja að minnka reglugerðarbyrðina og þar með bæta þessa þætti.

Eitt dæmi um hvernig Evrópusambandið reglugerðarvæðir allt sem því dettur í hug, lætur sér eiginlega ekkert óviðkomandi, er að einmitt var rætt um það fyrr í vetur hvernig Evrópusambandið lagði mikla vinnu í það að gera reglur um það hvernig bakarí sem ætluðu að selja brauð myndu hafa hlutfall milli sykurs og hveitis. Sem sagt, það virðist ekki vera neitt sem Evrópusambandið telur ekki að þurfi að grípa inn í. Þetta er það sem gerist þegar báknið stækkar og stækkar, það fer að lifa fyrir sjálft sig, það fer að finna leiðir til að skapa meiri vinnu og það bitnar bara á heimilum og fyrirtækjum álfunnar.