157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:02]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Þá er komið að þessari atkvæðagreiðslu um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Þetta þingmál hér hefur allt verið í skötulíki, bæði undirbúningur þess og framlagning þess hér á þingi án lögbundins samráðs áður en það var lagt fram hér til umræðu. Hér er lögð þvílík tímapressa á þingmenn að afgreiða málið og þau fáu svör sem þingmenn hafa fengið frá hæstv. ríkisstjórn við þeim aðkallandi spurningum sem lagðar hafa verið fram hafa ekki verið til þess að upplýsa nokkurn skapaðan hlut um málið heldur, þvert á móti, vekja upp fleiri spurningar en svörin svara.

Miðflokkurinn leggst gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu og þar af leiðandi líka gegn aðildarviðræðum við Evrópusambandið um aðild. Í því ljósi mun Miðflokkurinn ekki styðja þessa þingsályktunartillögu en til skaðaminnkunar mun þingflokkurinn styðja nokkrar breytingartillögur sem hér liggja fyrir.