þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Við greiðum atkvæði í dag um hvort hafnar verði að nýju aðildarviðræður við ESB, þ.e. við ætlum að leyfa þjóðinni að greiða um þetta atkvæði. Eftir þessari atkvæðagreiðslu hef ég beðið frá 2013. Það er ánægjulegt að við séum komin á þann stað að greiða núna atkvæði um þetta. Ég styð þessa tillögu og greiði atkvæði með henni. Ég er sannfærður um það að við aðildarviðræður við ESB muni koma í ljós að við getum haft gagn af því. Við munum fá samning sem við getum tekið afstöðu til. Ég segi já.