þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Hæstv. forseti. Við greiðum nú atkvæði um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Það er nýmæli hér á landi að greidd séu atkvæði á Alþingi um að leggja það í hendur þjóðarinnar, almennings á Íslandi, hvort hefja eigi að nýju aðildarviðræður við ESB. Eins og fram kemur í áliti meiri hluta hv. utanríkismálanefndar hefur annar háttur verið á slíkri ákvarðanatöku hér á landi. Árið 2009 voru haldnar alþingiskosningar 25. apríl og mánuði síðar, 25. maí, var lögð fram þingsályktunartillaga af hálfu þáverandi utanríkisráðherra þess efnis að Alþingi ályktaði að ríkisstjórninni skyldi falið að leggja inn aðildarumsókn að ESB. Sú tillaga var samþykkt á Alþingi 16. júlí 2009. Í mars 2014 lagði þáverandi utanríkisráðherra fram þingsályktunartillögu um að draga umsóknina til baka. Hún var aldrei samþykkt á Alþingi.
Í ljósi sögunnar er áhugavert að heyra talað um asa hér í þessum sal, næstum einu og hálfu ári eftir að ríkisstjórnin var mynduð, um þingsályktunartillögu sem lögð er fram um það að leggja það í hendur þjóðarinnar (Forseti hringir.) hvort eigi að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Þetta er söguleg stund og ég segi já við því að færa þessa ákvörðun héðan og í hendur almennings.