157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:56]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur verður tíðrætt um að hún treysti þjóðinni. Henni verður tíðrætt um að markmiðin séu skýr. Ég hef því ítrekað spurt hvort hægt sé að fá það fram að hún geri hundrað prósent varanlegar kröfur um undanþágur frá stofnsáttmála Evrópusambandsins — þetta er algert lykilhugtak í umræðunni og þeirri vegferð sem er fram undan — í okkar stærstu hagsmunamálum sem varða landbúnað, orkumál, sjávarútveg o.s.frv. Enginn af fulltrúum meiri hlutans í salnum og enginn af hæstv. ráðherrum hefur treyst sér til að koma hingað upp og segja: Já, við gerum kröfu um hundrað prósent undanþágu á stofnsáttmála Evrópusambandsins í þessum mikilvægustu málum þjóðarinnar.