157. löggjafarþing — 112. fundur,  28. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:20]
Horfa

Árni Helgason (S):

Frú forseti. Mig langaði aðeins að gera grein fyrir atkvæði mínu en ég styð þessa tillögu. Mig langaði bara að halda því til haga að þetta er hluti af þeirri vinnu sem stjórnarandstaðan hefur verið í hér í þessu máli, að reyna að bæta tillöguna þrátt fyrir að vera ekki stuðningsmenn málsins. Sú vinna hefur verið til bóta. Þetta orðalag skiptir auðvitað miklu máli því að ríkisstjórnin þarf að sækja sér skýrt umboð hér. Hún stendur ekki öll að málinu, eins og fram hefur komið, í þeim skilningi að einn flokkurinn er beinlínis á móti aðild, annar setti ýmis skilyrði og fyrirvara í síðustu kosningum og einn er mjög hlynntur aðild. Meiri hlutinn hefur illa rökstutt þetta upplegg að fara aftur í viðræður sem að engu urðu og hafa ekki verið í gangi síðan 2012–2013. Í þeim viðræðum var búið að loka, eins og kemur fram í skýrslu, um 11 málaflokkum. Sextán þeirra voru opnaðir en tveir þeir stærstu, sjávarútvegur og landbúnaður, voru óopnaðir. Þetta var afraksturinn af ferli sem hófst 2009 og rann út í sandinn 2013, afraksturinn á fjórum árum. Það er umhugsunarefni.