þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Hæstv. forseti. Ég segi já því að ég trúi því að þjóðin eigi að eiga fyrsta og seinasta orðið í stórum málum sem þessu. En í þessu tilfelli hefur þessi spurning legið of lengi yfir og klofið þjóðina. Fyrst var sótt um aðild án skýrs lýðræðislegs umboðs frá þjóðinni og síðan var gerð tilraun til að slíta viðræðunum án skýrs lýðræðislegs umboðs frá þjóðinni. Hér erum við, í eitt skipti fyrir öll, að leiða vilja þjóðarinnar í ljós. Ég segi jafnframt já því ég vil fá að vita meira og sjá hvað getur komið út úr mögulegum samningaviðræðum. Ég segi já því ég persónulega trúi því að það þjóni íslenskum hagsmunum betur að vera í myntbandalagi með nánum bandalagsþjóðum frekar en að vera með dýran örgjaldmiðil. En ég segi fyrst og fremst já því að ég treysti þjóðinni.