þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Við þingmenn megum aldrei hætta að finna Íslandi sterkari stöðu í alþjóðaheiminum, ekki síst þegar heimurinn er jafn óstöðugur og hann er núna. Við megum aldrei hætta að leita leiða til að fjölga valkostum og tækifærum fyrir börnin okkar og unga fólkið. Við megum aldrei hætta að leita leiða að meiri fyrirsjáanleika, stöðugri gjaldmiðli, lægri vöxtum fyrir atvinnulíf og fjölskyldur í landinu. Við megum heldur aldrei hætta að jafna leikinn, fjölga tækifærum fyrir okkur öll og auka réttlæti. Við megum aldrei hætta að berjast fyrir almannahagsmunum umfram sérhagsmuni. Það er nákvæmlega þetta sem málið sem við erum að greiða hér atkvæði um snýst um.
Samningsmarkmiðin eru alveg skýr. Þau koma fram í greinargerð með þingsályktunartillögunni og síðan eftir frábæra vinnu hv. utanríkisnefndar, alveg skýr samningsmarkmið. Við vitum alveg hvað við þurfum að gera þegar kemur að auðlindum; standa vörð um okkar auðlindir, standa vörð um okkar orku, tryggja hagsmuni Íslands, íslenskra fjölskyldna, ekki síst barna, en líka fyrirtækja til skemmri og lengri tíma.(Forseti hringir.) Nú fer málið til þjóðarinnar. Treystum henni. Síðan, ef við fáum umboð, þá munum við gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að ná sem bestum samningi fyrir íslenska þjóð og treysta fullveldi okkar til lengri tíma. (Forseti hringir.)
Virðulegi forseti. Ég segi já.