157. löggjafarþing — 113. fundur,  1. júní 2026.

skýrsla um gjaldmiðlamál.

[10:37]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegur forseti. Ég undirstrika: Skýrslan er mjög skýr. Skýrslan dregur það fram að krónan sinnir ekki því hlutverki að vera höggdeyfir þegar efnahagslegir erfiðleikar ríða yfir. Niðurstaðan er að krónan ýki sveiflur í stað þess að jafna þær. Þar að auki dregur skýrslan líka skýrt fram hvernig við erum háðari þróun í peningamálum annars staðar en við hefðum viljað halda. Ég var að koma af fundi Þjóðhagsráðs þar sem voru einmitt sagðar setningar um að við þyrftum kerfisbreytingar til lengri tíma. Við erum búin að tala um þetta í mörg ár, áratugi, og við erum alltaf föst í því sama. Af hverju má ekki einmitt fara í þær kerfisbreytingar sem á endanum raunverulega skila heimilum og fyrirtækjum í landinu ábata?

Aðeins nokkrar tölur: Seðlabanki Íslands, eins og við þekkjum, heldur uppi ríflega 1.000 milljarða gjaldeyrisforða; það kostar 30–40 milljarða að viðhalda honum. Af hverju getum við ekki notað þessa 30–40 milljarða sem við borgum á ári í það að byggja upp okkar innviði sem hafa verið vanræktir af fyrri ríkisstjórnum og við erum að reyna að byggja upp? Við erum m.a. að tala um að venjulegar íslenskar fjölskyldur og fyrirtæki greiði árlega fyrir að skipta gjaldeyri úr evru yfir í krónur (Forseti hringir.) 12–13 milljarða sem fara inn í bankakerfið. Er ekki kominn tími til að við horfumst í augu við raunveruleikann og skilum fjölskyldum og heimilum í landinu raunverulegum ábata sem skiptir þau máli?